25.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

117. mál, tilboð frá norsku stjórninni

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Um þennan lið dagskrárinnar á að ákveða hvernig ræða skuli. En eg hefi nú leitað að þessum tilboðum frá norsku stjórninni á lestrarsalnum, og er ekkert tilboð þar að finna. Eg hefi líka spurt hæstv. ráðherra (H. H.), og kveðst hann ekkert tilboð hafa. Það lítur út fyrir að verið sé að gabba deildina, og leyfi eg mér því, þegar svona er farið að, að leggja til að engin umr. verði höfð um þetta mál.