12.08.1912
Efri deild: 22. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (128)
31. mál, ófriðun og eyðing sels
Jón Jónatansson (framsögum.):
Jeg þarf ekki að tala langt mál fyrir frumv. þessu, einkum þar sem hæstv. forseti hefur skýrt frá villu þeirri, er slæðzt hefur inn í þgskj. 107. Eins og allir sjá, á grein sú, er prentuð er á þgskj. 197, aðeins við fyrri málsgrein 5. gr. á þgskj. 130, en ekki hina síðari; annað var aldrei meining nefndarinnar.
Annars miðar brtill. nefndarinnar aðeins til þess að gera frumv. skýrara.