21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)
82. mál, viðskiptaráðunauturinn
Ráðherrann (H. H.):
Eg vildi mikillega biðja tillögumennina að skýra frá, hvað þeir eiga við. Hvað eru „annarleg störf“? Á að banna manninum að sitja á þingi eða ekki? Ef svo er til ætlað, þá vil eg að það sé sagt beint út, og atkvæði um það greidd.