09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)

20. mál, vatnsveita á Sauðárkróki

Ráðherrann (H. H.):

Eg sé, að málið á dagskránni er alment frumv. um vatnsveitu í löggiltum verzlunarstöðum. Nú vil eg spyrja hv. flutnm. (Ó. Br.), hvort ekki nægi þau almennu lög, sem þannig eru væntanleg og hvort nokkuð sé svo sérstaklega ástatt um Sauðárkrók í þessu efni, að ekki geti fallið inn undir hin almennu lög. Væri svo ekki, vil eg skjóta því til háttv. flutnm., hvort han sæi sér ekki fært að taka þetta frv. aftur.