15.07.1912
Sameinað þing: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)

Fyrsti fundur í sþ.

Steingrímur Jónsson (framsögum. 1. kjörbrjefadeildar):

Fyrsta kjörbrjefadeild hefur haft til meðferðar 13 kjörbrjef úr 3. deild, og hefur ekkert við neitt þeirra að athuga, enda hafa engar kærur komið fram viðvíkjandi þeim. Kjörbrjefadeildin leggur því einróma til, að allar þessar 13 kosningar sjeu teknar gildar.

Voru kosningarnar því næst samþyktar með öllum greiddum atkvæðum.