12.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (545)
10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Framsögumaður (JónMagnússon):
Út af fyrirspurn hv. þm. Dal. (B. J.), skal eg geta þess, að nefndin mun ekki geta fallist á br.till. hans. Í flokk eru teknir allir þeir símar, sem nokkur von er um að geti borgað sig og til annara síma þykir okkur ekki fært að taka lán. Hinir verða að bíða þangað til afgangur verður af tekjunum af 1. og 2. flokks símunum.