19.08.1913
Neðri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í C-deild Alþingistíðinda. (1027)

30. mál, leynilegar kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum

Framsögum. (Ólafur Briem):

Af því að engin br.till. er komin fram í þessu máli, þá býst eg við að enginn háttv. þm. hafi neitt við frumvarpið að athuga og væntir nefndin þess að frumvarpið verði nú samþykt, eins og það liggur fyrir.