04.07.1913
Neðri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í C-deild Alþingistíðinda. (14)

4. mál, landsreikningar

Ráðherrann (H. H.):

Eg get ekki að því gert að mér finst þessar athugasemdir eiga betur við eldhúsdaginn, en nú við 1. umr. Þær hafa alla engin áhrif á það, hvort þingið vill veita þessu frv. sem hér liggur fyrir samþykki sitt til 2. umr. eða ekki. Eg á ekki persónulega sök á því, að reikningurinn 1910–11 er svo seint til. Eg hefi heldur ekki verið við stjórn þau árin. Og mér er ómögulegt að gefa frekari ástæður fyrir því, en eg hefi þegar gert, hvers vegna hann var ekki tilbúinn og fullprentuðu nokkrum dögum fyrr.