25.08.1913
Efri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Eiríkur Briem:

Jeg leyfi mjer að stinga upp á, að þessu frumv. verði vísað til nefndarinnar, sem skipuð var til þess, að íhuga frumv. til laga um landssjóðsábyrgð á sparisjóðsfje og innlánsfje Landsbankans og útibúa hans, og um meðferð á varasjóði bankans.

Málinu var vísað til 2. umr. í e. hlj. Frv. vísað til bankamálanefndarinnar með 11 samhlj. atkv.