09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Steingrímur Jónsson:

Jeg styð till. háttv. þm. Ísf., þar sem hann tímans vegna hefur ekki getað komið með þær breytingartillögur, er hann hafði hugsað sjer að koma fram með. Það getur varla hindrað framgang málsins, og það á bezt við, að það komi fram núna við 2. umr.