10.09.1913
Efri deild: 51. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (2357)

115. mál, Reykjavíkurdómkirkja

Júlíus Havsteen:

Jeg vil aðeins taka það fram, að jeg hafði ekkert með umsjón kirkjunnar að gera nema frá 1894 til 1904, og að aðalmunurinn á skoðun hv. 5. kgk. og mín er, að jeg vil láta gera við gallana jafnóðum, en hann vill láta bygginguna falla og byggja svo upp aftur.