11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2387 í C-deild Alþingistíðinda. (2619)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jón Ólafsson:

Herra forseti ! Eg skal ekki vera að lengja umræðurnar með því að vera að tala fyrir þessari tillögu. Eg tel það alveg óþarft.

Eg hefi komið fram með hana eftir beiðni annara, vegna þess, að hún þótti vísari til famgöngu í háttv. efri deild, heldur en hin breytingartill. Ástæðurnar fyrir henni tel eg alveg óþarft að vera að taka hér upp aftur; háttvirt deild mun þekkja þær.