12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í C-deild Alþingistíðinda. (804)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Jóhannes Jóhannesson:

Eg skal leyfa mér að upplýsa það, að nefndin, sem kosin var í Aðalvíkursímamálið, hefir fyrir löngu lokið störfum sínum. Það mál er útkljáð, og verð eg því að halda fast við hina tillöguna, að kosin verði 5 manna nefnd.