13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í C-deild Alþingistíðinda. (824)

81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík

Bjarni Jónsson:

Eg vildi að eins lýsa fögnuði mínum yfir röksemdaleiðslu háttv. í. þm. S.-MúI. (J. Ól.). Eg er alveg á sama máli og hann, að hér á landi eru svo samfeld kjör manna, að það kemur í sama stað niður, hvort allir kjósa eða fáir kjósa. Eg ætlaði að eins að lýsa gleði minni yfir þessari röksemdaleiðslu háttv. þm. (J. Ól.), og eg vona að hann komi með sömu röksemdir þegar stjórnarskrármálið kemur til atkvæða.