12.08.1914
Efri deild: 40. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
120. mál, stjórnarskrá
Steingrímur Jónsson:
Jeg tek það fram út af ræðu hæstv. ráðherra, þar sem hann var að tala um hina miklu ábyrgð þingsins á málinu, þá er ekki um það að tala, hvort hún er mikil eða lítil, heldur á hitt að líta, að hún fellur að sjálfsögðu eingöngu á þann flokk, sem nú styður hæstv. ráðherra.