11.08.1914
Efri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Magnús Pjetursson :

Jeg tel þessa brtt. til nokkurra bóta; þó er hún hálf varhugaverð. Það getur lengi orðið álitamál, hvað telja megi brýna nauðsyn. Jeg veit t. d. ekki, hvort það verður talin brýn nauðsyn, að landsstjórnin leggi út fje til að borga bankalán það, er hælisstjórnin er í ábyrgð fyrir, þó þess sje krafist.