10.08.1914
Sameinað þing: 3. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (2070)

102. mál, handbært fé landssjóðs komið í gull

Hannes Hafstein:

Með því að háttv. þm. sjálfum mun allflestum óljóst um hvað á að tala á skyndifundi þessum, hvað þá hitt, hverja afstöðu þeir eigi að taka, þá sýnist mjer naumast tími til kominn að bjóða almenningi upp á að hlusta á umræðurnar.