05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

11. mál, eignarnámsheimild vegna mannvirkja undir hafnarbryggju

Framsögum. (Stefán Stefánsson) :

Eg þarf ekki að vera margorður. Frv. var flutt hér í deildinni og engar breytingar gerðar né mótmæli hafin. En háttv. Ed. hefir skeytt því ákvæði við, að ef annarhvor málsaðilja vill ekki una mati, þá geti hann óskað yfirmats.

Nefndin telur þessa breytingu til bóta og ræður háttv. deild til að samþ. frv.