07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Forseti:

Áður en umræðum er haldið lengra áfram vil jeg geta þess, að jeg get ekki borið undir atkvæði brtt. á þgskj. 808, því samkv. 30. gr. þingskapanna er ekki hægt að bera upp till. um sama atriði, sem felt hefir verið í sömu deild. Tölurnar í þessari brtt. eru að vísu ekki þær sömu og í brtt., sem feld var, en hún er um sama efni.