23.08.1915
Efri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

104. mál, útflutningsgjald

Jósef Björnsson :

Þetta frumvarp, sem hjer liggur fyrir, er þess eðlis, að eðlilegast er að vísa því til sjávarútvegsnefndar, og leyfi jeg mjer því að stinga upp á, að því verði vísað til þeirrar nefndar að lokinni þessari umr.