13.09.1915
Efri deild: 60. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í B-deild Alþingistíðinda. (926)
140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana
Forseti:
Jeg tek það fram, að er jeg ber upp tillöguna um nefndarskipun, þá gjöri jeg það ekki til þess, að málið verði svæft, heldur vona jeg, að nefndin skili fljótt áliti sínu, og set því málið á dagskrá á morgun. Má þá afgreiða það á venjulegan hátt.