02.01.1917
Efri deild: 10. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (802)

8. mál, niðurlagning Njarðvíkurkirkju og sameining Keflavíkur- og Njarðvíkursókna

Framsm. (Sigurður Jónsson):

Með því að eigi hefir komið fram nein brtt. við frumvarp þetta, virðist engin þörf á, að lengdar sje umræður um það. Leyfi jeg því að láta þá ósk mína í ljós, að frumvarpið verði samþykt hjer við 3. umræðu og síðan afgreitt til Nd.