12.01.1917
Efri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

Þinglok efri deildar

Kristinn Daníelsson:

Áður en við skiljum vildi jeg flytja hæstv. forseta þakkir fyrir starf hans og framkomu sem forseta.

Hann hefir sýnt áhuga fyrir því, að öll vinnubrögð þingsins gengi sem best. Hann hefir sýnt glöggan skilning á þingsköpunum, og hann hefir sýnt lipurð og sanngirni í öllum úrskurðum.

Jeg efast ekki um það, að jeg tala hjer fyrir hönd allra þingbræðra minna, og vænti þess, að þeir sýni það með því að standa upp.

Allir stóðu upp.