10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Magnús Torfason:

Meiri hluti allsherjarnefndar hefir þegar haft þetta mál með höndum og athugað það þegar frá byrjun. (H. St.: Hvar er nál.?) Við sáum enga ástæðu til þess að koma fram með neitt sjerstakt prentað nál., en látum að eins nægja að leggja það til, að málið nái fram að ganga og frv. verði samþ., enda háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) skýrt afstöðu okkar.