20.07.1917
Efri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)
66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri
Flm. (Halldór Steinsson):
Jeg hefi stungið upp á því, að málinu verði vísað til allsherjarnefndar. En þar sem menn hafa nú heyrt ummæli hæstv. atvinnumálaráðherra, mætti ef til vill virðast ástæðulaust að setja málið í nokkra nefnd. Jeg leyfi mjer því að taka till. mína aftur.