15.08.1917
Efri deild: 31. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1946 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

128. mál, stofnun landsbanka

Halldór Steinsson:

Jeg vil að eins gera örstutta athugasemd. Háttv. frsm. (M. T.) lagði mikla áherslu á, að frv. væri fram komið til þess að skapa festu í stjórn bankans. Þá vil jeg bera fram eina spurningu. Má ekki eins skipa 1 af 2 bankastjórum sem 1 af 3? Mjer finst ekki sannað, að nauðsyn sje á þessu frv., eða að nein festa fáist með því, og mun því, eins og jeg tók fram í fyrri ræðu minni, greiða atkv. gegn því.