05.07.1917
Neðri deild: 3. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (387)

14. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá og Markarfljót

Pjetur Jónsson:

Af því að jeg er dauður mun jeg að eins gera stutta aths. Jeg er á sama máli og háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), að það er alveg rangt að vísa máli þessu til fjárveitinganefndar. Hún hefir mikið að starfa. Svo vil jeg benda á, að í henni situr enginn búsettur eða kunnugur austanfjalls. Álít jeg málið best komið í landbúnaðarnefnd, en svo geta nefndarmenn leitað sjer upplýsinga þeirra þm., sem kunnugastir eru.