08.09.1917
Neðri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (567)

153. mál, vitagjald

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg skal að eins leyfa mjer að geta þess, að fjárhagsnefndin hefir gengið inn á þá breytingu, sem háttv. Ed. hefir gert á frv., sem sje að hækka um 5 aura gjaldið af hverri smálest í skipum, sem taka höfn hjer við land, öðrum en skemtiskipum, og leggur því til, að frv. sje samþ. eins og það liggur nú fyrir.