29.08.1917
Neðri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (993)

61. mál, málskostnaður einkamála

Framsm. (Einar Arnórsson); Jeg þarf þess eins að geta, að háttv. Ed. hefir gert þá eina breyting, að dómari hefir nokkru frjálsari hendur um að láta málskostnað falla niður en var í frv., eins og það hafði verið samþykt í þessari deild. Allsherjarnefnd hefir ekkert á móti þessari breytingu, en leggur til, að frv. verði samþ., svo sem það liggur nú fyrir frá Ed.