07.06.1918
Neðri deild: 41. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)

90. mál, Fiskifélag Íslands

Einar Arnórsson:

Að eins sú athugasemd, að beiðnir um eftirgjöf á lánum, eins og t. d. símalánum, sem hingað koma, hafa jafnan verið settar í fjárhagsnefnd til athugunar. Virðist mjer þetta vera samskonar málaleitun. En hitt er annað mál, hvort ástæða er til þess, að málið fari í nokkra nefnd.