15.06.1918
Neðri deild: 50. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1214)

97. mál, efniviður til opinna róðrarbáta

Frsm. (Sigurður Stefánssou):

Háttv. þm. Dala. (B. J.) kvað þessa till. upptíning úr fyrri till. hans. Auðvitað er till. engu verri fyrir það. En jeg skal þó geta þess, að áður en háttv. þm. (B. J.) bar fram till. sínar hafði bjargráðanefnd haft þetta mál til meðferðar og gert ráðstafanir til þess, að skýrslum um róðrarbáta yrði safnað.

Jeg skal ekki draga úr heiðri háttv. þm. Dala. (B. J.), en vildi að eins taka það fram, að hjer er ekki um neinn upptíning að ræða, heldur hafði nefndin þegar lagt drög fyrir, að þetta yrði gert.