17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

50. mál, kolanám í Gunnarsstaðagróf

Pjetur Jónsson:

Mjer hefir heyrst þess óskað, að bjargráðanefnd taki málið til íhugunar, og hygg jeg, að mjer sje óhætt að lofa því fyrir hennar hönd að afgreiða málið sem allra fyrst, en áður finst mjer það sjálfsagt, að hún beri sig saman við bjargráðanefnd Ed. um það, hvora till. beri heldur að aðhyllast.