20.04.1918
Efri deild: 6. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (1593)

3. mál, fráfærur ásauðar

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Benda vil jeg á það, að allir landbúnaðarnefndarmennirnir eru í bjargráðanefnd, en auk þeirra 2 aðrir hv. þm., og tel jeg að gagnvart athugun þessa máls sje þar ekki góðum mönnum ofaukið. Jeg býst og við því, að bjargráðanefnd hafi víðari sjóndeildarhring og líti meir á hagsmuni landsins í heild sinni en hag landbúnaðarins eingöngu.