04.07.1918
Neðri deild: 63. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í C-deild Alþingistíðinda. (1942)

110. mál, lán til kolanáms

Sigurður Stefánsson:

Það hefir komið til tals, að vísa máli þessu í bjargráðanefnd, en það virðist þó eiga betur heima í fjárhagsnefnd, þar sem um lán úr landssjóði er að ræða. Annars er það að eins til að tefja fyrir framgangi málsins að vísa því til nefndar, er svo áliðið er þingtímans.