16.07.1918
Neðri deild: 72. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í C-deild Alþingistíðinda. (2119)

96. mál, verðlag á vörum

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg verð að heimta það, fyrir hönd okkar flm. þessa frv. og meðnefndarmanna minna í bjargráðanefnd, að hv. þm. Dala. (B. J.) nefni nöfn þeirra, sem hafa ærumeitt verðlagsnefndina eða einstaka menn í henni. Við flm. viljum ekki liggja varnarlausir undir jafnsvívirðilegum aðdróttunum. Og það ætti engum þm. að líðast að fleygja fram öðru eins og þessu, órökstuddu og algerlega tilhæfulausu.