17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í C-deild Alþingistíðinda. (2306)

59. mál, sala á salti til útlendra fiskiskipa

Fyrirspyrjandi (Pjetur Ottesen):

Það virðist nú svo, sem hæstv. stjórn ætti allri að vera málið kunnugt. Jeg skal geta þess, að jeg hefi látið hæstv. atvinnumálaráðherra vita, að jeg myndi minnast á þetta mál nú, en hann hefir ekki fundið ástæðu til að vera viðstaddur samt sem áður.