04.07.1918
Neðri deild: 63. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (602)

41. mál, skemmtanaskattur

Forseti:

Út af þessum orðum háttv. þm. Dala. (B. J.) vil jeg geta þess, að atkvgr. var lokið og atkv. talin þegar háttv. þm. (B. J.) kom inn í deildina. Og það er síður en svo, að hann hafi nokkurs rjettar að reka, þar sem hann bar skylda til þess að vera viðstaddur atkvgr.