06.09.1918
Neðri deild: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Forseti skýrði frá, að brtt. 4 væri útbýtt í deildinni á þessum fundi, en nál. væri ókomið enn, en mundi koma til útbýtingar síðar á fundinum eða verða borið út meðal deildarmanna. Mundi fundi verða frestað nokkrar klukkustundir, til þess að deildarmenn ættu kost á að kynna sjer álit nefndarinnar. En síðan yrði fundi haldið áfram síðari hluta daga og málið þá tekið til meðferðar, ef deildin leyfði.