04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)

25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg vil að eins geta þess, að mjer er kunnugt um ýmsa mikils metna menn í Ed., sem eru samdóma stjórninni og allsherjarnefnd þessarar deildar. Jeg veit auðvitað ekki, hvernig málið fer í Ed., en vil ekki beygja mig undir það, þó að einhverjum í Ed. þyki ákvæðið of hátt; þeir geta þá lækkað það, ef þeim sýnist.