09.08.1919
Neðri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1764 í B-deild Alþingistíðinda. (1596)

111. mál, greiðsla af ríkisfé til konungs og konungsættar

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg hefi litlu að bæta við það, sem hv. þm. Dala. (B. J.) sagði um málið, og tel heppilegast, að það sje ekki mikið rætt hjer á þingi. Jeg hefi áður skýrt hv. þm. frá málavöxtum á einkafundi, og vona jeg, að það geti nægt þeim, og hefi því ekki frekara að segja hjer.