15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)

68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Það urðu svo miklar umræður um þetta mál áður hjer í hv. deild, að ekki er þörf að auka þær. Jeg vil að eins lýsa yfir því, að fjárhagsnefndin hefir athugað frv. eftir að það kom frá hv. Nd. nú, — sem felt hefir breytingu þá, er ófyrirsynju var gerð á því hjer í hv. deild —, og hefir komist að sömu niðurstöðu og áður, að leggja til, að frv. verði samþykt óbreytt.