20.09.1919
Efri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2245)

152. mál, vörutollur

Fjármálaráðherra (S. E.):

Fyrir þessari hv. deild liggur og annað frv., sem fer fram á nákvæmlega sömu hækkun á vörutollinum, en þar sem það frv. fer fram á breytingar á flokkuninni, sem er vitanlegt að mundi sæta mótspyrnu í hv. Nd., þá legg jeg hiklaust til, að þetta frv. fái að ganga áfram.