24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (1074)

46. mál, Landsbanki Íslands sem hlutabanki

Jakob Möller:

Jeg bjóst við því, að máli þessu yrði vísað til fjárhagsnefndar. En af því leiðir, að úrslit þess hljóta að dragast svo, að það nái ekki fram að ganga á þessu þingi. Jeg býst ekki við, að hægt sje að lúka málinu á svona skömmuni tíma. En ef málið fer til nefndar, vildi jeg skjóta því til hennar, að hún láti það þó ekki „sofna svefninum langa“, heldur afgreiði það svo fljótt, sem unt er, á einhvern hátt, t. d. með till. um að vísa því til stjórnarinnar til undirbúnings undir næsta þing.