25.02.1920
Neðri deild: 12. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (554)

37. mál, manntal á Íslandi

Frsm. (Sveinn Björnsson):

Brtt. á þgskj. 101 er komin frá nefndinni eftir bendingu frá háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) við 1. umr., og hefir hann tjáð mjer, að hann sje ánægður með orðalagið eins og það verður með brtt. Nefndin hefir átt tal við hagstofustjóra, og leggur hann áherslu á, að frv. nái fram að ganga á þessu þingi. Jeg vona, að hv. deild taki tillit til þess.