20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)

1. mál, hlutafélög

Jón Þorláksson:

Úr því að búið er að mæla á móti brtt. þessari, þá vildi jeg leyfa mjer að mæla með henni. Jeg mundi ekki telja það skaða, þó að brtt. yrði til þess, að málið færi í sameinað þing og dagaði uppi á þessu þingi; því þá yrði þó einhver von um, að hægt væri að afgreiða það á næsta þingi í því formi, sem hægt er að una við.