18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)

63. mál, eignarnám á vatnsréttindum í Andakílsá

Frsm. (Jón Þorláksson):

Jeg get að mestu vísað til nál. á þskj. 148, en vil bæta því við, að vatnamálanefndin hefir borið sig saman við flutningsmenn frv., og þeir tjáð sig samþykka því, að frv. verði aukið sem nál. og brtt. í því fara fram á. Nefndin orðaði breytingarnar í nánu sambandi við vatnalagafrumvarpið, sem nú liggur fyrir þinginu.

Að öðru leyti vildi jeg geta þess, að það er lítilfjörleg prentvilla í 4. till., sem raunar ekki veldur efnisbreytingu, en jeg óska þó að verði lagfærð, ef frv. verður prentað upp við framhald umræðnanna; þar stendur: viðhaldi, en á að vera: til viðhalds.