09.05.1921
Efri deild: 65. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

54. mál, sala á prestsmötu

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Þetta frv. var fyrst flutt á Alþingi 1917 af þm. Eyfirðinga. Þeir fluttu það í því formi, sem nefndin nú leggur til, að það verði sett í. Brtt. þær, sem nefndin gerir, miða því í þá átt, að sníða burtu þær breytingar, sem frv. hefir tekið í háttv. Nd.; þó voru þær breytingar ekki gerðar nú, heldur 1919, en þá dagaði málið uppi hjer í háttv. Ed.

Að öðru leyti get jeg vísað til nál.