13.05.1921
Efri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2009 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

91. mál, fátækralög

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Nefndin hefir gert eina lítilfjörlega breytingu á frv., og er hún í samræmi við aths. háttv. þm. Snæf. (H. St.) við síðustu umr. máls þessa. Hefi jeg ekkert um þá brtt. að öðru leyti að segja, en leyfi mjer að leggja til, að frv. verði samþ. með henni.