05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

Til þess að menn geti sjeð það, að frsm. (Jak. M.) geti ekki vænst þess, að jeg og háttv. þm. Mýra. (P. Þ.) gætum verið flm. að frv., nægir að benda á, að flaustrið var svo mikið, að framsögumaður nefndarinnar var fyrst kosinn eftir að málið hafði verið tekið út af dagskrá hjer í deildinni.