09.03.1921
Efri deild: 18. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (235)

32. mál, friðun rjúpna

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Út af umræðum, sem urðu hjer í deildinni við 2. umr. málsins, hefir landbúnaðarnefnd leyft sjer að koma fram með brtt. á þskj. 111, við fyrirsögn frv. Ef sú brtt. verður samþ., verður bert, að þetta frv. er breyting á lögum um friðun fugla og eggja, nr. 59, frá 10. nóv. 1913. Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en vona að brtt. verði samþ.